Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Atburðarteljari

fyrstu dagarnir <3

27. september 2009 klukkan 13:59
Halló aftur.
jæja! núna er ég búin að vera hérna í 2 vikur nákvæmlega (hjá fjölskyldunni) og tímin er búin að líða rosalega hratt! finnst eins og ég sé bara búin að vera hérna í 3 daga en samt er svo ótrúlega margt búið að gerast og mér líður líka eins og ég sé búin að þekkja alla hérna í að minnsta kosti ár, rosalega blendið eitthvað. ég hugsa rosalega mikið um hvað ég ætli að gera þegar ég kem heim & er strax farið að hlakka til, en á sama tíma kvíða mjöög mikið fyrir að kveðja alla hérna.

Síðustu dagar eru búnir að vera allir voða svipaðir, vakna eldsnemma, því eins og Dofri sagði mér þá eyða konurnar hérna ótrúlegum tíma í að finna sig til á morgnana. síðan fara í skólan og gera þar það sama og alltaf... EKKI NEITT! ég held ég eigi eftir að verða klikkuð ef þetta heldur svona áfram, skil ekkert sem kennararnir segja svo ég er búin að dunda mér í sudoku ( btw metið mitt er núna 3 mín með eitt púsl) og svo er ég búin með heila stílabók og penna á einni viku takk fyrir!
Eftir skóla förum við síðan alltaf heim og borðum pasta með rauðri sósu og parmesan osti, (btw, pasta er fullt af næringu! lesist Ómar Þröstur!
http://www.recipetips.com/kitchen-tips/t--167/pasta-nutritional-facts.asp ) það hefur ekki klikkað nema einu sinni að það var ekki pasta í matinn , og þá var ég ekki sátt! Held ég muni fá fráhvarfseinkenni þegar ég kem heim. svo þarf Federica alltaf að læra svo mikið svo ég finn mér alltaf eitthvað til að dunda mér við :)

Annars var eitthvað Festival í gær sem ég fór á með nokkrum vinum, þannig er mál með vexti að það eru 3 kirkjur hérna í mínum bæ, og í hverri kirkju er einn saint, hann á svo afmæli einu sinni á ári og allur bærin heldur uppá það, auðvitað! Þetta var voðalega kósý stemning, allir niðrí bæ og svertingjar með svona sölubása þar sem þeir voru að selja eftirlíkingar, teppi og styttur.. sá voðalega mikið eftir að vera ekki með veski þá, hefði verið gaman að kaupa smá minjagrip, en það eru víst svo margar svona hátíðir á ári, svo ég þarf ekkert að panikka.



Image hosting by TinyPic


Eins og þið sjáið kannski þá var ég með mat UPPÍ mér í bæði skiptin. gaman að þessu. (btw, þarna voru þau akkurat að kynna mér fyrir eitthverju sem þau héldu að ég væri að smakka í fyrsta skiptið, kölluðu það panini með pulsu, ætlaði ekki að þora að fá mér það, en viti menn, þetta var PULSA!)

Svo er ég byrjuð í Ítölsku einkatímum, það gengur svona sæmilega og ég er farin að getað vitað nokkurnvegin útá hvað samræðurnar ganga, svaka sátt með það :) Ítölskukennarin minn er þó ekki alveg sú skemmtilegasta, hún er hingað til á þessum 2 tímum búin að ná að sannfæra mig um að ég sé í rauninni 3 ára. Kenndi mér að SKRIFA stafrófið um daginn, og eyddi hálftíma í að kenna mér að skrifa bæði A & a, var síðan voða ánægð með mig þegar ég sagðist alveg vita fyrir að þetta væri sami stafurinn.
neinei hún er samt ágæt en vanmetur mig pinku, & ég verð alltaf jafn pirruð á því og þarf virkilega að sitja á mér í tímunum.



Ein síðan við fórum út að borða i Nova siri

Annars er allt voða skrýtið, t.d þá reykja ALLIR hérna, krakkar fæddir árið 1994 eru hérna útá götu reykjandi og engin er inni í pásunni í skólanum því þau verða auðvitað að fara út að reykja, já og svo drekka allir kaffi. þarf alltaf að rökræða jafn mikið við fólk þegar ég segi nei við kaffi og sigarettum, þau eru aldrei sátt með mig. Það er líka sama hversu gamall þú ert hérna, þú getur keypt þér sigó og áfengi. ótrúlegt hreint, samt er eins og loftið sé eitthvað öðruvísi hérna því reykurin fer ekkert næstum því jafn mikið í mig og heima á íslandi, hann verður ekki jafn yfirgnæfandi. svo líka anga ekki allir af sigarettulykt þótt þau reykja og loftið verður ekki óbærilegt. seeem er bara gott, svo ég kvarta ekki! :D

Svo var fullt af fleiri hlutum sem ég ætlaði að segja, en ég er auðvitað búin að gleyma þeim öllum þannig ciao for now <3


ein mynd af down town hérna í lokin <3 :D
 
Sunna Kristín.
hæ ást :)
ótrúlega gaman að fá að fylgjast með þér !
en já haha, las líka annars staðar að einhver stelpa í mexíkó væri að verða brjáluð á sínum kennara .. já þú sýndir mér hana ! þarna gellan sem lenti í flóðinu og því.
Allavena, já held að þú takir kannski ekki eftir reyknum því allir reykja? og loftið er bara reykur svo þú ert að anda að þér reyk .. haha ég er heima hérna með HREINA loftið mitt ! feeeis .. ég þarf enga ítalíu :)
en vona að þú sért þvílíkt að skemmta þér þarna og hlakka til að heyra meira frá þér sæta :)
kveðjur af landinu þar sem maður þarf að fara að nota húfur bráðum !
#1
27. september 2009 klukkan 19:17
 
Katrín
haha neei nefnilega ekki rétt með reykin , ég er sko með ofnæmi fyrir reykingum svo ég ætti að vera með dúndrandi hausverk og kvef eins og vanalega á íslandi, en það er ekki :O
#2
27. september 2009 klukkan 21:26
 
Mútta
Hæ krúttið mitt :)

Gaman að fylgjast með þér hér á síðunni :) Endilega vertu dugleg að setja hingað inn þá geta ættingjar og vinir bara fylgst með.

Góða skemtun að læra ítölskuna, hún er skárri en finska.... haha :)
Hlakka til að heyra frá þér, nú styttist í afmælið þitt... 5 dagar...

Love
Mamma
#3
29. september 2009 klukkan 14:57
 
Anna Guðrún
Ég er að telja niður dagana þangað til þú kemur heim aftur.. með einn heitan ítala fyrir mig!
bara 289 dagar...

Hei þú missir af svaka afmælisteiti hjá mér um helgina :( hugsaði alveg.. hm hverjum á ég að bjóða. þessi, þessi, katrín.. nei djók hún er á ítalíu

Skemmtu þér vel sætust :) hlakka til að heyra fleirri sögur.
btw bloggið þitt er komið í favorites hjá mér!
#4
29. september 2009 klukkan 15:13
haha, var pulsan sem þú fékkst eins og íslensk pulsa!? :O
Ítölskukennarinn hérna er líka freeekar leiðinlega finnst mér. Stundum er hún að láta okkur gera alveg súper einfalda hluti sem ég er þegar búin að læra, og spyr okkur mörgum sinnum hvort við skiljum en svo er hún að biðja okkur að segja einhverja setningu á ítölsku sem hún sagði á ensku sem mér finnst ótrúlega erfitt stundum! og mér finnst hún alltaf vera einblína svo á mig með það! :P aaallavega, byrja alltaf að tala um mig :P veit! það reykja allir hérna, reyndar nokkrir vinir mínir ekki, og var voða stoltur af mér þegar ég sagðist ekki reykja, haha, en já, held að maður finni ekki jafn mikla lykt því loftið er miklu rakara og eiginlega skítugara finnst mér svo reykurinn blandast bara inní það. haha, var að labba í skólann einn daginn og það var einhver að reykja fyrir framan mig og mér fannst reykurinn lykta bara mjööög vel, þetta var einhver spes tegund, fannst það frekar fyndið :D er orðin freekar vön sígarettureyknum, en ætla ALDREI!! að byrja reykja og ekki þú heldur!!! ég banna allt svoleiðis fykt!! :O ég banna það sko! vooonnast til að sjá þig bráðum! haltu áfram að bloggaa svo ég geti fylgst með þér :) kveðjur frá Sardínunum :) (vááá þetta er langt komment)
#5
30. september 2009 klukkan 18:45
 
Lísa
vííj! rosa gaman ad lesa þetta fra þer :D eg elska svona blogg!
heyri ad þu skemmtir þer ykt vel og vonandi gengur allt vel afram :)
og ef anna fær heitan itala , fæ eg lika :(?

allavega skemmtu þer sæta og gaman ad heyra svona i þer :D ;*
#6
30. september 2009 klukkan 23:33
Katrín Arndís Blomsterberg MagneudóttirMamma: jáá ég lofa að vera dugleg að blogga ! :D annars vona eg að þessi ítalska fari að sink in bráðlega, leiðinlegt að vera alltaf sú sem stendur og segir ekkert! :(

Anna: MIG LANGAR Í AFMÆLIÐ ÞITT :( en ef þig langar þá er þér boðið í afmælið mitt hérna? viltu koma? getum haldið uppá afmælin okkar saman hérna á ítalíu, hvernig hljómar það ? :D Þá geturu bara valið ítalan þinn sjálf líka! :D

Guðrún: æi kjánalega sagt hjá mer en þetat sem þau voru að kynna fyrir mér átti að vera svaka nyjung en þetta var bara eins og pulsan á íslandi var fyrir 10 árum, bara minna þróuð, vantaði sósurnar og allt haha! ALLIR vinir mínir hérna reykja, enda ekki hægt að finna vini sem reykja ekki... :( ég mun frekar deyja heldur en að reykja eina sigarettu svo þú þarft ekki að hafa ahyggjur af því, ekki þú heldur :D komum heim reyklausar! En sjáumst við ekki eftir 4 vikur eeeða? :D <3 hlakka ykt til að sjá þig hvenær sem það verður! vantar að tala við íslending sem er ekki í gegnum netið eða síma!

Lísa: haha jújú, ég kem með ítala fyrir ykkur báðar! fýliði ekki örugglega stráka með veski og plokkaðar augnbrýr? því það er allt vaðandi í þeim... já og ma ekki gleyma þeim sem eru klipparar, hjúkkur og flugþjónar ( EN ERU EKKI HOMMAR!)
#7
01. október 2009 klukkan 20:43
 
Guðny Adolfsd
hæ hæ gamann að geta fylgjast svona með hvað þú sért gera hverju sinn
allt það sama hérna hjá mer kveðja Guðný mamma
#8
03. október 2009 klukkan 00:05
 
Rakel frænka í NZ
Gangi þér vel í Ítölskunni held áfram að fylgjast spennt með.... svo þangað til næst KNÚS**
#9
03. október 2009 klukkan 04:59
 
Guðny Adolfsd
hæ hæ elsku Katrín hvernig hefur þú það ,allt við það sama hérna , á ekki að fara að
blogga smá elska þig kveðja Guðný mamma
#10
07. október 2009 klukkan 01:04
 
Anna Guðrún
mig langar til ítalíu! arg. En drífðu þig að blogga kona, ég er að bíða og bíða og bíða eftir að heyra hvernig er þarna!

heyrumst sætasta! :)
#11
14. október 2009 klukkan 20:35

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Katrín Arndís Blomsterberg Magneudóttir
  • Netfang: katrin.arndis@hotmail.com
  • Staður: Policoro, Matera.
  • Um mig: hallóó Ég heiti Katrín Arndís & er frá Íslandi, núna er ég þó skiptinemi á suður-Ítalíu hjá yndislegri fjölskyldu. ætla að blogga hérna til að leyfa öllum heima að fylgjast með mér hérna úti <3 svo eru allar myndir héðan á facebook, voða leiðinlegt að setja þær hingað inn.

Viltu ná í mig?

Msn: katrin.arndis@hotmail.com
Heimasími: +39 0835972815
Gsm: +39 (á eftir að virkja, kemur seinna)
Heimilisfang:
Via Latina 54,
75025 Policoro (MT)
Italy

Atburðarteljari