Mánuður! <3
Jæææja, það er komið meira en einn mánuður og ég er bara búin að blogga 2x, held það sé ekki nógu gott svo ég ætla að skella einu inn.
Málið er bara það að því lengur sem líður að ég bloggi, því meira skeður og því meira fresta ég því að blogga því ég veit ekki hvar ég á að byrja.
Núna er komin mánuður síðan ég lenti í Rome og alveg fullt búið að gerast. En samt er ég ekki viss hvort mér líði eins og ég sé búin að vera hérna stutt eða lengi. Mikið búið að gerast svo ég gæti alveg eins verið búin að vera hérna í ár en samt finnst mér eins og ég sé bara búin að vera frá íslandi í svona 2 vikur max.
Undanfarnir dagar er búnir að vera endalausir að líða og ef ég vissi ekki betur þá myndi ég geta svarið það að sólahringurin hérna er að minnsta kosti 50 klukkutímar! Sama hvað ég reyni að dunda mér við mikið á einum degi, klukkan er aldrei neit búin að líða!
Ítölskutímarnir mínir eru 3x í viku (mán, mið, fös) og þótt mér sé farið að líka betur við kennaran þá er þetta mál ekkert ennþá komið í eitthvað uppáhald hjá mér, það eru engar reglur fyrir neitt, og ef það eru reglur þá er allt óreglulegt svo reglurnar gilda ekki fyrir það. Þetta á víst allt að koma smám saman en ég hef enga þolinmæði í það.
Þegar ég kom hingað var allt svo nýtt og spennandi og á hverjum degi sá ég eitthvað alveg glænýtt sem ég gat ekki hætt að hugsa um. Núna er þetta aðeins búið að breytast og lífið er orðið meira hversdagslegt = mér er farið að leiðast! Svoo ég ætla að fara að finna mér eitthvað til að dunda mér við dagsdaglega.
Ég las í blogginu hjá Guðrúni að hún hafði farið út að labba og mér fannst það svo góð hugmynd að ég ákvað að herma, er hingaðtil búin að gera það 2x og tók fullt af myndum útaf ég var að sjá nýja staði í bænum og allt eitthvað svo flott og spennandi.
Eftir löbbin mín finnst mér þessi bær alltaf meira og meira flottur. Allt eins og í bíómyndunum þar sem húsin eru samanþjöppuð, fólk hengir þvottin sinn út fyrir gluggana, allt í bogum og göturnar minni en einstefnugöturnar heima á Íslandi.
Að fara í bíl hérna er ekki eitthvað sem þú gerir nema þú viljir eiga þá hættu að deyja. Fólkið keyrir vægast sagt eins og brjálæðingar og mig langar oft að hringja heim og segja öllum að ég elski þau því ég er svo viss um að ég sé að lifa mínar síðustu mínútur. Var í bíl um dagin þar sem hann fór uppí 160 takk fyrir, ég hef ekki og mun aldrei venjast þessum hraða takk fyrir!
ALLIR! Bæði í skólanum og bara bænum mínum yfirhöfuð vita hver ég er! Rosalega skrýtið að hvert sem ég fer horfir fólk á mig og brosir eða byrjar eitthvað að tala við mig & ég hef enga hugmynd hver þau eru. Rosalega lýsandi fyrir þetta er þegar ég fór út að labba um dagin kom póstmaðurin uppað mér (maður sem ég vissi ekki einu sinni að væri póstmaðurin) og tilkynnti mér það að hann væri með pakka handa mér og gatan mín væri næst svo ég þyrfti að fara að drífa mig heim til að geta skrifað undir, já takk fyrir hann vissi hvar ég átti heima og hvað ég héti.

Í skólanum er ég síðan búin að velja mér fög, ég átti að velja 4 fög af þessum 12 sem þau eru í til að fylgjast með. Þar sem fögin hérna eru hundleiðinleg valdi ég þau sem voru minnst leiðinlegust af þeim og það endaði með Ensku, Art, Geograpy og Íþróttum.
Enskan var auðveld að velja því það er eina sem ég skil eitthvað í tímum, já og plús það að konan sem er nokkurskonar aðstoðarmanneskja mín fyrir afs er að kenna áfangan svo það væri frekar leiðinlegt af mér að velja það ekki. & í staðin fyrir það að vera svona kurteis og velja fagið hennar þá þarf ég að sitja núna næstu mánuðina að hlusta á ljóð eftir Blake.
Art valdi ég svo því ég gjörsamlega DÝRKA kennaran! Hann er frekar gamall, og heyrnalaus! Svo já, hann heyrir ekkert og þið getið rétt imyndað ykkur kliðrið og lætin sem eru í tímunum hjá honum. Hann les líka varir eins og konan í FB-EYE. Svo öllum tímum eyðir hann í að standa einn uppá töflu, clueless og tala við sjálfan sig.
Geography er huuundleiðinleg og kallin er að gera útaf við mig í tímum. Valdi hann af eitthverri ástæðu sem ég mun aldrei skilja.
Íþróttir leit síðan út fyrir að vera sæmilegt þar sem ég þyrfti hvort sem er að fara í það myndi ég ekki velja það. en eftir þess tíma get ég fullyrt það að ég er ekki á næstunni að stefna á að vera pro í Volleyball! Kennarin deildi með öllum bekknum um dagin að ástæðan fyrir því hversu ömurleg ég væri í þessari íþrótt væri útaf ég næði ekki að reikna út hvar boltin myndi lenda þegar hann er að koma fljúgandi til mín og þess vegna væri ég svona oft búin að klúðra köstum með því að grípa boltan með andlitinu.
Já! & afmælið mitt! það var haldið þarsíðasta sunnudag og var alveg yyyndislegt! alveg 20 og eitthvað manns sem komu og allir voðalega stilltir :) héldum það bara á neðstu hæð húsins, með köku, borðum og allt rosa kósý! set myndirnar frá því inná facebook! :)
http://www.facebook.com/profile.php?id=1229082134#/album.php?aid=153099&id=582719154
Bekkurinn! eða svona næstum eitthverjir úr hinum bekknum og eitthver sem vantar úr mínum bekk
Eitthvað sem allir hérna kunna víst...
Ég og krakkarnir frá scanzano :)
Ég & flotta afmæliskakan mín með 17 kertum á! <3
það byðja allir að voða vel að heilsa þér mundu að við elskum þig
kveðja Guðny

bíð spenntust eftir næsta bloggi!
og til hamingju með daginn um daginn :D
;* ;* ;* ;*