Aðalvalmynd

Teljari

  • Heimsóknir í dag: ...
  • Þennan mánuð: ...
  • Frá upphafi: ...

Auglýsing

Atburðarteljari

1/3 af Oktober

19. nóvember 2009 klukkan 17:53
2 mánuðir búnir af þessum 10 & ég er ekkert búin að blogga í mánuð :$ ætla bara að reyna að segja frá helstu atburðunum svo þetta verður bara eins og nokkur lítil blogg :D


(17 október)


Afmæli Eugeniu: Enn eitt af þessum 18 ára afmælum hérna sem er svakalegt mál! Hvert einasta afmæli er eins og sweet 16 á MTV og krakkarnir eru að leigja hótel fyrir veislurnar sínar, fá bíla í afmælisgjöf & ég veit ekki hvað og hvað! Highlightið á kvöldinu var samt án efa þegar ég sat þarna í rólegheitum og allt í einu byrjaði tónlist á fullu og allir fóru í kóngalínu, ég joinaði hana þótt ég vissi ekkert hvað ég væri að gera og hún endaði útá miðju dansgólfi þar sem allir fóru á „sinn stað" og byrjuðu að dansa! & þá er ég ekki að meina svona dans eins og á Íslandi þar sem enginn veit hvað þau eru að gera... neei þetta var bara eins og í highschool musical og allir vissu hvað þeir áttu að gera og hvað kæmi næst. Mér leið eins og algjöru fífli standandi þarna útá miðju gólfi!


(19,20,21 & 22 október)


Intercultura six week camp:  Ég var vakin eeldsnemma um morgunin til að keyra til Bernalda þar sem Sofía frá Finnlandi býr. Var komin til hennar eitthvað um 8 um morgunin og var með henni allan dagin þangað til eitthver AFS kona kom & sótti okkur og skutlaði okkur  til Castellaneta, pinkulítill sumarbær eitthverstaðar lengst þar sem hálfum bænum er bara lokað á veturna því það tekur því ekki að hafa neitt opið þegar engir túristar eru!, samt allt svo ótrúlega flott, gamlar rústir og allt svona ekta ítalskt :D Vorum síðan líka á 4 eða 5 stjörnu hóteli sem mér fannst ekkert svo slæmt.. Hitti síðan Unni þar eftir 2 mánaða fjarveru og fór næstum að grenja þegar ég sá hana ég varð svo spennt! Hefði Guðrún verið líka hefði þetta ekki getað verið meira fullkomið! Gat samt varla talað íslensku fyrst og við lentum ótrúlega oft í því að tala saman í hálftíma og fatta síðan allt í einu að við værum að tala á ensku.

Annars voru allir dagarnir voðalega svipaðir; morgunmaturin var borðaður ( allir nema ég & Unnur því við sváfum undantekningarlaust yfir okkur!) svo voru fundir, viðtöl, leikir og kynningar útí eitt alla daga og á kvöldin var alltaf eitthver svo skemmtilegur að bjóða öllum inní sitt herbergi í smá „partý" við hittum aftur fullt af krökkum sem við höfðum kynnst í Rome og kynntumst nýjum frá ótrúlegustu löndum sem ég vissi ekki einu sinni að væru til! Síðan inná milli voru landakynningar & talent show og ég hefði getað svarið fyrir það að megintilgangur campsins væri að láta okkur fá heimþrá, þau hættu ekki að tala um hvað þetta væri erfitt, hvað við værum LANGT frá öllum sem við þekktum og elskuðum og blablabla svo ég var frekar sátt að fara aftur „heim" þótt það væri hundleiðinlegt að kveðja alla aftur.

 

Hópurin minn í að sýna dans á talent showinu



Sunny frá HongKong, ein yndislegasta stelpa sem til eeeer!



Random hópur af krökkunum



Krakkarnir frá Tailandi (fyrir utan þessa í miðjuni auðvitað)



Talent showið hjá HongKong & Kína



Partur af hópnum í mínu fylki <3

 
Mútta
Hæ ástin mín

Hvenær kemur partur 2 af 3?
og 3 af 3...?

Fer með þetta til gamla í kvöld :)

Knús og góða helgi
Mamma
#1
11. desember 2009 klukkan 12:21

Skrifa athugasemd

Prófíll

  • Nafn: Katrín Arndís Blomsterberg Magneudóttir
  • Netfang: katrin.arndis@hotmail.com
  • Staður: Policoro, Matera.
  • Um mig: hallóó Ég heiti Katrín Arndís & er frá Íslandi, núna er ég þó skiptinemi á suður-Ítalíu hjá yndislegri fjölskyldu. ætla að blogga hérna til að leyfa öllum heima að fylgjast með mér hérna úti <3 svo eru allar myndir héðan á facebook, voða leiðinlegt að setja þær hingað inn.

Viltu ná í mig?

Msn: katrin.arndis@hotmail.com
Heimasími: +39 0835972815
Gsm: +39 (á eftir að virkja, kemur seinna)
Heimilisfang:
Via Latina 54,
75025 Policoro (MT)
Italy

Atburðarteljari